Veðurstöð FB er nemendaverkefni í Vefforritun á þriðja þrepi, á tölvubraut í umsjón Hjörvars Inga Haraldssonar. Verkefnið nýtir sér gögn frá Veðurstöð FB, sem er partur af samstarfsverkefninu „Vistvæna húsið“, unnið með FB, Fab Lab Rvk., HR, Rafal og Umhverfisstofnun. Rafal lagði alfarið til allan búnað, og fjarskipti fyrir Veðurstöðina. Þetta nemendaverkefni er mikilvægt skref fyrir „Vistvæna húsið“, sem gerir húsið „sýnilegra“ í formi lifandi vefsíðu með veðurgögnum, og einnig sem vefsíðu til birtingar og gagnagreiningar á hinum ýmsum orku- og rannsóknarmælingum í tengslum við húsið.